Föstudaginn 8. mars 2024 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 7:30.


Mætt voru: 

  • Lovísa Jónsdóttir (LJ)
  • Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson (EBH)
  • Alexandra Briem (AB)
  • Kristín Thoroddsen (KT)

Fundinn sat einnig Jóhannes S. Rúnarsson (JSR), framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.


1. Útboð á akstri - staðan

Lagt var fram minnisblað frá Sigurði G. Jónssyni, ráðgjafa frá Cowi og Guðmundi Siemsen, lögmanni frá Advel varðandi hleðsluinnviði og næstu skref í útboðinu. Óskað er eftir að aðilar frá viðræðunefnd sveitarfélaganna um rekstur almenningssamgangna til framtíðar komi á næsta fund.  Verðtillögur frá bjóðendum sýna að orkuskiptin kosta umtalsverðar fjárhæðir og þarf að meta hvað miklu er eðlilegt að kosta til í því umhverfi sem sveitarfélögin eru í. Stjórn óskaði eftir því að á næsta fundi væru lagðar fram tölulegar stærðir sem tengjast því útboði á akstri sem nú er í ferli.


Önnur mál

Fleira ekki rætt, fundi slitið um 8:20.